Sunnudagur, 21. janúar 2007
500 hestafla vélsleði til landsins!
Fluttur hefur verið til landsins vélsleði sem getur skilað um 500 hestöflum. Vélsleðinn náðist því miður ekki í myndatöku fyrir nýjasta tölublað Bílar & Sport, þar sem hann hafði ekki verið tollafgreiddur. Sleðinn er af gerðinni Yamaha Apex Mountain, en er mjög mikið breyttur. Nokkuð ýtarleg upptalning á sérútbúnaði sleðans er þó að finna í nýjasta hefti Bílar & Sport.
Í 2.tölublaði Bílar & Sport, sem áætlað er að komi út um miðjan febrúarmánuð, verður ýtarlegri umfjöllun um sleðann. Þema febrúarblaðsins verður þó jeppar og geta lesendur sent okkur ábendingar um efni því tengt á info@bilarogsport.is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.