Þriðjudagur, 13. febrúar 2007
Bjallan góða!
Það er oft að finna skemmtilega pistla, sögur eða annað skemmtilegt á heimasíðu fornbílaklúbbsins. Á vefsíðunni http://www.fornbill.is/ til að mynda þessa skemmtilegu sögu; "Á hraðbrautum Þýskalands má aka mjög hratt. Þar var eitt sinn gömul Volkswagen-bjalla á ferð og varð bensínlaus. Eftir nokkra stund ber að sportlegan Benz sem stöðvar og tekur bjölluna í tog. Þegar hann er nýlega lagður af stað aftur ber að Ferrari sem dregur úr hraðanum, ekur upp að hlið Benzans og ökumaðurinn lítur til Benz-ökumannsins og æfir inngjöfina. Ökumaður Benzans skilur táknmálið og er til í tuskið og nú gefa þeir báðir duglega í.Þegar bílana ber að næstu bensínstöð áttar ökumaður Volkwagen-bílsins sig á að Benzinn hefur gleymt honum og byrjar því að flauta til að minna á sig. Fyrst flautar hann kurteislega en síðar ákafar og ákafar.Nú víkur sögunni til afgreiðslumannsins á bensínstöðinni. Hann fylgist með leiknum og hringir svo til vinar síns sem afgreiðir á næstu bensínstöð og segir: Þessu máttu ekki missa af! Rétt bráðum sérðu Ferrari og Benz í æsilegum kappakstri og á eftir þeim er Volkswagen-bjalla sem liggur á flautunni til að komast framúr!"
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.